Á síðustu árum hefur það orðið algengara að sett séu svokölluð samkeppnisákvæði í ráðningarsamninga en efni slíkra samninga getur verið með ólíkum hætti. Til dæmis hafa slík ákvæði verið útfærð á þá leið að starfsmaður hefji ekki störf hjá samkeppnisaðila vinnuveitanda síns í ákveðinn tíma eftir starfslok eða að starfsmanni sé óheimilt að hefja eigin rekstur í samkeppni við fyrri vinnuveitanda. Þessum samkeppnisákvæðum eru settar skorður í 37. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936 (hér eftir samningalög). Samningsaðilar hafa því ekki algjört samningsfrelsi þegar kemur að gerð ráðningarsamninga með samkeppnisskilmálum. Ákvæði 1. mgr. 37. gr. hefur að geyma tvö skilyrði fyrir ógildingu þeirra samninga sem hafa að ge...