Bestu kveðjur, Leir og postulín

  • Sigrún Karls Kristínardóttir 1993-
Publication date
May 2022

Abstract

Fyrirtækið Leir og postulín hefur aðsetur í látlausum húsakynnum í Súðarvogi. Hjónin Edda og Jón stofnuðu fyrirtækið fyrir fjörutíu árum og hafa þau allar götur síðan sérmerkt bolla, glös, barmmerki og fleira fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, tilefni og einstaklinga. Í hverjum króki og kima húsnæðis Leirs og postulíns má finna minnisvarða prentaða á bolla, sem vísa til hátíðlegra tilefna, ævintýralegs gjaldþrots ríkisbanka eða áhugaverðra félagasamtaka. Bollarnir sem eru um 600 talsins vísa í óritskoðaða sögu íslensks samfélags og draga fram tíðaranda, stefnur og strauma í grafískri hönnun undanfarna áratugi

Extracted data

We use cookies to provide a better user experience.