Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir; samvinna heimilis og skóla

  • Drífa Mjöll Sigurbergsdóttir
  • Jóhanna Ásgeirsdóttir
Publication date
April 2010

Abstract

Tjáskipti eru mikilvæg fyrir þroska mannsins og vellíðan og það þarf að leita allra leiða til að gera tjáskipti möguleg fyrir alla. Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eru þær leiðir sem notaðar eru til tjáskipta aðrar en talmál. Verkefnið okkar fjallar um óhefðbundnar tjáskiptaleiðir og samvinnu heimilis og skóla. Verkefnið samanstendur af fræðilegri ritgerð og niðurstöðum úr viðtalskönnun sem við framkvæmdum. Í viðtalskönnuninni tókum við viðtöl við fimm mæður barna í grunnskóla sem nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir. Niðurstöður viðtalskönnunarinnar leiddu í ljós að reynsla foreldra af samvinnu heimilis og skóla var almennt góð. Þeir þættir sem mæðurnar töldu mikilvæga í samvinnunni voru; foreldra- og teymisfundir, einstaklingsáætlanir, jákvæ...

Extracted data

We use cookies to provide a better user experience.