Í réttarríki er það grundvallaratriði að unnt sé að leita úrlausnar sjálfstæðra og óháðra dómstóla, einkum um það hvort lagaheimid skorti fyrir afskiptum af réttindum manna eða hvort gengið er of langt í takmörkunum á mannréttindum. Er þetta sérstaklega mikilvægt þegar maður er borinn sökum um refsiverða háttsemi. Réttur manns til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi hefur löngum verið talinn ein af grunnstoðum réttarríkisins og er rétturinn verndaður meðal annars í 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og 10. gr. Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Raunar er það svo, að í nánast öllum rituðum stjórnarskrám heims, er þessi réttur verndaður. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvenær sön...